Orðið 'hlaupastelpa' hefur þrenns konar merkingu.
Í fyrsta lagi er það notað um léttúðuga stelpu og stelpu sem mikið er á ferðinni. Merkingin er þá vanalega heldur niðrandi.
Í öðru lagi er orðið notað um ákveðinn hlut í rokk, það er stöng sem tengir saman fótafjölina og rokksveifina. Þessi stöng er einnig ne...
Málsgrein er oft skilgreind á þann hátt að hún sé sá texti sem er á milli punkta. Í einni málsgrein er annað hvort ein eða fleiri aðalsetning sem eru þá tengdar. Með aðalsetningu er átt við setningu sem ekki er liður í annarri setningu. Dæmi:
a) Jón og Gunna giftu sig í gær.
b) Ég veit það.
c) Ég veit að þau ...
Orðið þvara er haft um sköfu, yfirleitt með löngu skafti, eða stöng með blaði á til að hræra í potti. Orðasambandið að standa eins og þvara í merkingunni ‛hafast ekkert að, standa aðgerðarlaus’ þekkist frá því á 19. öld og vísar líklegast til þvöru sem hangir eða stendur ónotuð í eldhúsinu eða ofan í grautar...
Í fyrstu málsgrein 1. gr. laga um stjórn fiskveiða (38/1990) segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar. Í 4. gr. sömu laga segir að enginn megi stunda veiðar í atvinnuskyni nema að hafa til þess almennt veiðileyfi og samkvæmt 5. gr. laganna koma einungis til greina íslenskir eigendur fi...
Gjáin nefnist sérkennilegt gljúfur í Þjórsárdal innanverðum, skammt frá Stöng, og fellur Rauðá í snotrum fossi niður í það. Heitir hann Gjárfoss. Þjórsá hefur sennilega myndað Gjána í öndverðu. Til skamms tíma hljóp hún þar oft fram í vatnavöxtum, en til að varna því var gerður stíflugarður yfir skarðið frá Sandaf...
Franska vísindaakademían skilgreindi metrann árið 1791, í kjölfar frönsku byltingarinnar, sem 1/10.000.000 (einn tíu milljónasta) úr kvartboga sem dreginn er milli póls og miðbaugs á jörðinni; það er 1/40.000.000 úr ummáli jarðar. Það segir sig þá sjálft að ummál jarðar taldist 40.000.000 metrar eða 40.000 kílómet...
Upphafleg spurning var svohljóðandi: Mig vantar gamalt íslenskt heiti yfir áhald sem notað er til að slökkva kerti. Áhaldið er úr málmi (kopar), ca. 20 cm löng stöng með píramíta á endanum sem settur er yfir logann og slekkur hann.
Áhaldið sem spurt er um hefur fleiri en eitt nafn. Það hefur verið nefnt skarhjá...
Ef þekkingarfræðingum tækist að finna einfalt og þægilegt svar við þessari spurningu yrðu mikil hátíðahöld með flugeldasýningu og öllu tilheyrandi. Hér verður stiklað á stóru um ýmis afbrigði spurningarinnar og nokkrar tilraunir til svara. Þessu svari er engan veginn ætlað að gera spurningunni full skil og lesendu...
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:Gilda reglur um tattóveringu íslenska fánann? Eru jafn strangar reglur um skjaldarmerkið og fánann?Um meðferð íslenska þjóðfánans og skjaldarmerkisins gilda lög nr. 34/1944 um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið. Reglur um notkun skjaldamerkisins eru mun strangari en ...
Aðalhlutverk samtengingar er að vera tengiliður milli einstakra orða, orðasambanda eða setninga. Í setningunni Jón og Gunna eru systkin er og samtenging, sömuleiðis í setningunni mennirnir gengu að húsinu og börðu að dyrum.
Samtengingum er gjarnan skipt í aðaltengingar og aukatengingar. Aðaltengingar eru yfirl...
Orðið mella hefur fleiri en eina merkingu og er uppruninn mismunandi. Það getur merkt ‘loka, slagbrandur; lykkja’ og er þá tökuorð úr dönsku malle eða nýnorsku melle ‘hringja, sylgja’ sem aftur hafa tekið orðið að láni úr fornfrönsku maille ‘möskvi, reimargat’.
Önnur merking orðsins er ‘dýr með afkvæmi sitt;...
Þau orð sem talin eru upp í spurningunni eiga það sameiginlegt að vera notuð sem samheiti. Flest eiga þau ættingja í öðrum Norðurlandamálum þótt merkingin sé ekki alltaf nákvæmlega hin sama.
Uppruni orðsins rófa er ekki fullljós. Í nýnorsku er til orðið rove 'skott á dýri' og í færeysku merkir rógva 'mjór hæða...
Hér er einnig svarað spurningunum:
Hverjar eru líkurnar á því að ég fái sexu ef ég kasta sex teningum?
og
Kastað er þrem teningum og maður fær að velja eina tölu. Hverjar eru líkurnar á að talan manns komi upp?
Allar þessar spurningar eiga það sameiginlegt að við endurtökum einhverja tilraun í ákveðinn fjölda ...
Miðfingur handarinnar er oftast nefndur langatöng en í eldra máli einnig langastöng. Hugsanlega er sú mynd upprunalegri og vísar til þess að þessi fingur stendur fram úr hinum eins og löng stöng.
Til gamans má nefna að fingurnir hafa flestir fleiri en eitt nafn. Talið frá þumli eru þau:
þumall, þumalfingu...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið „melur“ þegar vísað er til manna og hver er uppruni orðsins?
Orðið melur hefur fleiri en eina merkingu. Það getur merkt 1 ‘sand- eða malarborið svæði; ávöl hæð, lágur hóll’, 2 ‘melgresi’ og 3 ‘mölfiðrildi, mölfiðrildislirfa; eyðsluseggur’.
Samkvæmt...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!